Verð

Einfaldari leið til að skipuleggja vaktir og manna teymið

Með JITR færðu eitt kerfi til að halda utan um vaktaplanið, starfsfólkið og lausar vaktir. Skipuleggðu daglegan rekstur, bregstu hraðar við breytingum og fáðu meiri yfirsýn eftir því sem teymið stækkar.

30 daga prufa á Vaktaplani Pro

Prófaðu alla eiginleika Pro með þeim fjölda notenda sem teymið þitt þarfnast. Engar greiðsluupplýsingar eru nauðsynlegar til að byrja.

Allt grunnferli vaktaplansins byrjar í Frítt

Báðar leiðir innihalda starfsmannaaðganga, vaktaskipulag, handvirka úthlutun, Vaktaboð og aðgang að JITR Markaðstorginu. Pro eykur umfang og stjórn.

Vaktaplan Frítt

Fullbúinn grunnur fyrir minni teymi, með tengdum aðgöngum og Vaktaboðum fyrir allt fyrirtækið.

0 kr.

á mánuði

  • 1 starfsstöð
  • 3 deildir
  • 30 virkir starfsmenn
  • 1 stjórnandi
  • Myndaðu endurtekið vaktaplan allt að 90 daga fram í tímann
  • 5 Vaktaboð í hverjum mánuði
  • Vaktaboð til alls fyrirtækisins
Byrja ókeypis
Fullur aðgangur

Vaktaplan Pro

Ótakmarkað rekstrarumfang, markviss Vaktaboð og ítarleg saga fyrir stærri teymi.

290 kr.

fyrir hvern notanda

VSK innifalinn

  • Ótakmarkaðar starfsstöðvar
  • Ótakmarkaðar deildir
  • Allir notendur geta verið stjórnendur
  • Myndaðu endurtekið vaktaplan allt að 12 mánuði fram í tímann
  • Ótakmörkuð Vaktaboð
  • Sendu Vaktaboð á deild, starfsstöð eða allt fyrirtækið
  • Ítarleg breytingasaga vaktaplans
  • Full saga mönnunar
Hefja 30 daga prufu

Vaktaboð

Mönnun sem tryggir áhyggjulaust umhverfi bæði fyrir starfsmenn og stjórnendur.

Bjóddu viðeigandi starfsmönnum að taka opna vakt, sjáðu hverjir eru lausir og tilbúnir og veldu svo hver tekur vaktina.

1

Skipuleggðu vaktina

Stofnaðu vaktina í vaktaplaninu.

2

Bjóddu teyminu vaktina

Viðeigandi starfsmenn geta sagt hvort þeir séu lausir og tilbúnir án þess að hringt sé í hvern og einn.

3

Opnaðu út á markað ef þarf

Ef teymið getur ekki mannað vaktina getur sama vakt verið auglýst á JITR Markaðstorginu.

JITR Markaðstorgið

Utanaðkomandi mönnun þegar teymið þarf aukahjálp.

Auglýstu opnar vaktir á JITR Markaðstorginu þegar þú vilt ná til starfsfólks utan fyrirtækisins. Starfsfólk sækir um, þú skoðar prófíla og velur hver fær vaktina.

1

Settu vaktina inn

Opnaðu vakt fyrir stærra net JITR-starfsfólks þegar þig vantar utanaðkomandi mönnun.

2

Skoðaðu umsækjendur

Sjáðu prófíla, reynslu, einkunnir og umsagnir áður en þú velur hver passar best.

3

Veldu og staðfestu

Veldu réttu manneskjuna og staðfestu vaktina, allt saman innan JITR.